Landsréttur hefur þyngt dóminn yfir Shokri Keryo upp í sjö ár. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Keryo, sem er sænskur, í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir skotárás í Úlfarsárdal í 2. nóvember árið 2023. Dómurinn var kveðinn upp í Landsrétti í gær.
Keryo hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því hann var handtekinn eftir árásina og dregst sá tími frá fangelsisvist hans.
Var Keryo sakfelldur fyrir hættubrot, en sýknaður fyrir tilraun til manndráps fyrir héraðsdómi í fyrra.
Keryo neitaði sök á skotárásinni fyrir dómi í mars og kvaðst lítið muna frá kvöldinu umrædda þar sem hann var sakaður og dæmdur fyrir að hafa skotið fjórum skotum í áttina að fjórum einstaklingum er þeir stóðu utandyra við íbúðarhúsnæði í Silfratjörn.
Eitt skotanna fór inn um glugga hjá fjögurra manna fjölskyldu, sem er málinu með öllu óviðkomandi. Keryo sagðist lítið muna eftir kvöldinu og neitaði sök á árásinni fyrir dómi.
Sá
...