Reynd Katla María hefur leikið í meistaraflokki frá 14 ára aldri.
Reynd Katla María hefur leikið í meistaraflokki frá 14 ára aldri. — Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnukonan Katla María Þórðardóttir er gengin til liðs við FH en hún lék með Örebro í sænsku úrvalsdeildinni í fyrra. Katla er tæplega 24 ára miðju- eða varnarmaður, spilaði alla 26 leiki Örebro í deildinni á árinu 2024 og skoraði eitt mark. Hún lék með Keflavík til ársins 2019 en síðan með Fylki í tvö ár og svo með Selfyssingum í tvö ár. Katla á einn A-landsleik að baki, þrjá leiki með U23 ára landsliðinu og 38 leiki með yngri landsliðum Íslands.