Sænska lögreglan sagði í gær að þeir sem létu lífið í skotárás í skóla í Örebro á þriðjudag hefðu verið frá nokkrum þjóðlöndum, af báðum kynjum og á ýmsum aldri. Sýrlenska sendiráðið í Svíþjóð sagði í færslu á Facebook að ­tveir Sýrlendingar hefðu verið meðal hinna látnu
Samúð Blóm, kerti og miðar hafa verið lögð við skólann. „Það er mikil ást í heiminum. Það getur gleymst eftir svona illvirki,“ segir á einum miðanum.
Samúð Blóm, kerti og miðar hafa verið lögð við skólann. „Það er mikil ást í heiminum. Það getur gleymst eftir svona illvirki,“ segir á einum miðanum. — AFP/Jonathan Nackstrand

Guðmundur Sv. Hermannsson

gummi@mbl.is

Sænska lögreglan sagði í gær að þeir sem létu lífið í skotárás í skóla í Örebro á þriðjudag hefðu verið frá nokkrum þjóðlöndum, af báðum kynjum og á ýmsum aldri.

Sýrlenska sendiráðið í Svíþjóð sagði í færslu á Facebook að ­tveir Sýrlendingar hefðu verið meðal hinna látnu. Sendiráð Bosníu skýrði einnig frá því að bosnísk kona hefði látið lífið. Alls létust tíu í árásinni auk árásarmannsins, sem svipti sig lífi eftir að lögregla kom á staðinn. Sex særðust, þar af fimm alvarlega.

Lars Wiren, lögreglustjóri í Öre­bro í Svíþjóð, sagði á blaðamannafundi í gær að lög­reglu­menn sem urðu fyrst­ir á vett­vang hefðu líkt aðstæðum við helvíti: „Látið og sært fólk, ösk­ur og reyk­ur.“ Lögreglumenn hefðu fengið það á tilfinninguna að eftir að þeir komu á vettvang

...