Silvía Svíadrottning felldi tár er þau Karl Gústaf konungur heimsóttu Risbergska-skólann í Örebro daginn eftir að 35 ára gamall maður gerði þar mannskæðustu skotárás í sögu Svíþjóðar á þriðjudaginn þar sem tíu manns lágu í valnum
Skilningsleysi Silvía Svíadrottning og Karl Gústaf konungur heimsækja vettvang skelfingarinnar í Örebro ásamt forsætisráðherrahjónunum.
Skilningsleysi Silvía Svíadrottning og Karl Gústaf konungur heimsækja vettvang skelfingarinnar í Örebro ásamt forsætisráðherrahjónunum. — AFP/Jonathan Nackstrand

Atli Steinn Guðmundsson

atlisteinn@mbl.is

Silvía Svíadrottning felldi tár er þau Karl Gústaf konungur heimsóttu Risbergska-skólann í Örebro daginn eftir að 35 ára gamall maður gerði þar mannskæðustu skotárás í sögu Svíþjóðar á þriðjudaginn þar sem tíu manns lágu í valnum. Svipti ógæfumaðurinn sig lífi að ódáð sinni lokinni.

Grátklökk með blómvönd

„Hvert fór Svíþjóðin okkar fagra?“ spurði drottning grátklökk í ávarpi með hvít blóm í vendi til minningar um fórnarlömbin – og er nema von að hún spyrji í ljósi fréttaflutnings frá Svíþjóð undanfarin misseri þar sem vargöldin stingur svo rækilega í stúf við gang mála í skandinavísku nágrannalöndunum að ætla mætti að um allt annan heimshluta væri að ræða.

Hefur manndrápum með

...