Vilborg Davíðsdóttir
Vilborg Davíðsdóttir

Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur frumsýnir flutning sinn á Laxdæla sögu á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi í kvöld kl. 20. „Ástir og afbrýði, hetjur og harmar, blóðhefndir og vígaferli, álög og seiður. Allt þetta og meira til er að finna í Laxdælu sem hefur um aldir verið ein ástsælasta Íslendingasagan. Sterkar konur og skrautbúnir menn stíga þar fram í röðum en það er hin örlynda Guðrún Ósvífursdóttir sem bindur söguna saman, konan sem þótti bestur kvenkostur á öllu Íslandi um sína daga, vænst bæði að ásjónu og vitsmunum, allra kvenna kænst og best orði farin. „Þeim var ég verst er ég unni mest,“ sagði hún undir lok sinnar harmrænu og átakamiklu ævi – en hvort átti hún við Kjartan eða Bolla?“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að Vilborg þekki Söguloftið vel því þar endursagði hún sögu sína um Auði djúpúðgu á árunum 2017-2019 við miklar vinsældir. Miðar fást á tix.is.