![Halla Tómasdóttir](/myndir/gagnasafn/2025/02/08/ab645576-ac2f-4a79-82f2-0ddc44f3cc97.jpg)
Alls hljóta 25 hljóðbækur tilnefningu til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna – Storytel Awards 2025. Segir í tilkynningu að fimm hljóðbækur hafi verið tilnefndar í fimm flokkum; Börn og ungmenni, glæpa- og spennusögur, skáldsögur, ljúflestur og rómantík og óskáldað efni.
Almenn netkosning fór fram dagana 22. janúar til 3. febrúar, en þar gátu hlustendur kosið eftirlætistitil sinn úr 25 hljóðbókum í hverjum flokki. Þá fara fimm efstu bækur hvers flokks úr netkosningu fyrir fagdómnefndir, sem velja að lokum sigurvegara og dómnefndir meta hljóðbækurnar sem heildstæð listaverk, þar sem vandaður lestur og framsögn bæta enn frekar við upplifunina. Því eru það ekki aðeins höfundarnir sem eru verðlaunaðir heldur einnig lesararnir. Vinningshafar verða síðan kynntir þann 27. mars og fer verðlaunahátíðin, sem er árlegur viðburður, nú fram í sjötta sinn á Íslandi.
...