![Húsvíkingur Jakob Gunnar í leik með Völsungi á síðasta tímabili.](/myndir/gagnasafn/2025/02/08/2f31dfec-96b1-41a3-b32b-e77e4644b3bb.jpg)
Húsvíkingur Jakob Gunnar í leik með Völsungi á síðasta tímabili.
— Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Þróttarar í Reykjavík hafa fengið Húsvíkinginn Jakob Gunnar Sigurðsson lánaðan frá KR fyrir komandi keppnistímabil í fótboltanum. Jakob, sem er aðeins 17 ára gamall, sló í gegn með Völsungi á Húsavík á síðasta ári þegar hann varð markakóngur 2. deildar með 25 mörk og átti drjúgan þátt í að koma liðinu upp í 1. deildina. Þá á hann að baki sex leiki með U17- og U16-ára landsliðunum. Samtals hefur hann leikið 40 leiki með Völsungi í 2. deild.