Glansmyndir nefnist sýning sem Telma Har opnaði í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur í gær, en sýningin stendur til 15. apríl. Samkvæmt tilkynningu frá safninu samanstendur sýningin af „litríkum og hálf súrrealískum ljósmyndaverkum
Myndir Eitt verka Telmu Har.
Myndir Eitt verka Telmu Har.

Glansmyndir nefnist sýning sem Telma Har opnaði í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur í gær, en sýningin stendur til 15. apríl. Samkvæmt tilkynningu frá safninu samanstendur sýningin af „litríkum og hálf súrrealískum ljósmyndaverkum. Í listsköpuninni fæst Telma við eigin sjálfsmynd sem mótast hefur af erfðum, uppeldi og umhverfinu. Í verkunum notar hún sjálfa sig sem hálfgerða „gínu“ til að túlka tilteknar hugmyndir, upplifun og reynslu og túlka þannig hugmyndina sjálfið og veruleikann sem það tilheyrir. Telma notar ljósmyndavélina sem tæki til að skapa óraunverulegt og óhlutbundið myndefni, með það að markmiði að draga fram ólík form og samsetningu hlutanna og velta þannig upp spurningum um norm og viðmið um fegurð, kyn og stöðu.“