Skagamaður Arnór Sigurðsson leikur ekki meira með Blackburn.
Skagamaður Arnór Sigurðsson leikur ekki meira með Blackburn. — Morgunblaðið/Eggert

Nafn knattspyrnumannsins Arnórs Sigurðssonar er ekki að finna á leikmannalista Blackburn Rovers fyrir síðari hluta tímabilsins í ensku B-deildinni. Arnór hefur lítið sem ekkert komið við sögu hjá Blackburn á tímabilinu, fyrst vegna veikinda og svo vegna þrálátra meiðsla. Skila þarf 25 manna leikmannalista til ensku deildakeppninnar áður en tímabilið hefst og aftur eftir að félagaskiptaglugganum í janúar er lokað, en þá gefst félögum færi á að uppfæra listann.