Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Þrátt fyrir að Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hafi kynnt ákvörðun sína í styrkjamálinu síðastliðinn föstudag bendir ekkert til þess að málinu sé lokið. Það virðist ætla að færast inn á Alþingi, sem nú hefur tekið til starfa.
Daði Már greindi fyrir helgi frá þeirri ákvörðun, sem hann studdi aðfengnum lagaálitum, að Flokkur fólksins þyrfti ekki að standa skil á þeim 240 milljónum króna sem flokkurinn fékk ofgreiddar úr ríkissjóði árin 2022, 2023 og 2024. Flokkurinn stóðst ekki lagaskilyrði þeirra framlaga, eins og Morgunblaðið greindi fyrst frá.
Í umræðum um stefnuræðu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í gærkvöld viku þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks báðir að styrkjamálinu og ýmsum afleiðingum þess, og ekki var
...