![Kvikmyndagerð Tökur hafa farið fram víða með tilheyrandi áhrifum.](/myndir/gagnasafn/2025/02/11/f198092b-c317-4e09-ad81-e1010acbedf4.jpg)
Kvikmyndagerð Tökur hafa farið fram víða með tilheyrandi áhrifum.
— Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Skattalegt framlag kvikmyndagerðar á Íslandi var árið 2023 7,4 milljarðar króna með virðisaukaskatti en styrkir til kvikmyndagerðar og kvikmyndanáms það ár námu samtals 4,7 milljörðum. Þannig greiddi greinin 1,6 sinnum meira í beina skatta en hún þáði í fjárfestingu og styrki frá hinu opinbera. Þetta kemur fram í úttekt ráðgjafarfyrirtækisins Reykjavík Economics á skattaáhrifum kvikmyndagerðar á Íslandi fyrir Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda.
Árið 2008 var velta í framleiðsluhluta greinarinnar um 4,5 milljarðar króna en í fyrra er áætlað að veltan hafi verið um 35 milljarðar. Nærri lætur að þetta sé um 700% veltuaukning. » 16