Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks segist ekki vera í stjórnmálum til þess að leita eftir völdum og vegtyllum. Hún upplýsti í viðtali í Spursmálum í gær að hún hefði fengið boð um að taka að sér embætti borgarstjóra í kjölfar þess…
![Borgin Hildur Björnsdóttir segir helsta áherslumál sitt vera árangur.](/myndir/gagnasafn/2025/02/11/6acfd309-249f-415f-bbe3-4db4658f9ae1.jpg)
Borgin Hildur Björnsdóttir segir helsta áherslumál sitt vera árangur.
— Morgunblaðið/Hallur Már
Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks segist ekki vera í stjórnmálum til þess að leita eftir völdum og vegtyllum.
Hún upplýsti í viðtali í Spursmálum í gær að hún hefði fengið boð um að taka að sér embætti borgarstjóra í kjölfar þess að upp úr núverandi meirihlutasamstarfi slitnaði á föstudag.
„Ég er auðvitað að leita að áhrifum og ég vil vinna að verkefnum,“ sagði hún og bætti við að helsta áherslumál sitt yrði að ná árangri.
Hvar á forgangslistanum er borgarstjórastóllinn?
„Hann er ekki á forgangslistanum. Ég fer ekki inn í neinn þann meirihluta sem ætlar ekki að ná árangri,“ sagði Hildur. „Og það er alveg búið að reyna að freista mín, skal ég segja þér, Stefán Einar,
...