Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
„Við hjá Samtökum skattgreiðenda höfum um árabil litið á sjálftöku stjórnmálaflokka á fé úr ríkissjóði sem einhverja mestu spillinguna í íslenskum stjórnmálum og enn frekar þegar í ljós kemur að þeir hafa ekki haft lagalegar forsendur til að fá þetta fé úthlutað,“ segir Skafti Harðarson, formaður Samtaka skattgreiðenda, í samtali við Morgunblaðið.
Hann hefur fyrir hönd samtakanna sent erindi til héraðssaksóknara, þar sem þess er krafist að meint brot þeirra stjórnmálasamtaka sem fengið hafa ofgreidda fjárstyrki úr ríkissjóði verði rannsökuð. Þess er krafist að saksóknari beiti þeim úrræðum sem lög um meðferð sakamála kveða á um, komi í ljós að refsilög hafi verið brotin.
Hann segir að alvarlegast sé að viðkomandi samtök hafi
...