„Það gengur mjög hægt að finna lausn á þessu og það er hvimleitt,“ segir Vigfús Þorsteinsson, formaður Íþróttafélags Reykjavíkur, ÍR. Talsverðrar óánægju hefur gætt með íþróttahús félagsins síðustu misseri, en þar hefur verið leki sem erfitt virðist að komast fyrir
Breiðholt Fjölnota hús ÍR er nýtt undir knattspyrnu og frjálsar íþróttir. Það var vígt árið 2020 en hvimleiður leki hefur verið í viðbyggingu hússins.
Breiðholt Fjölnota hús ÍR er nýtt undir knattspyrnu og frjálsar íþróttir. Það var vígt árið 2020 en hvimleiður leki hefur verið í viðbyggingu hússins. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

„Það gengur mjög hægt að finna lausn á þessu og það er hvimleitt,“ segir Vigfús Þorsteinsson, formaður Íþróttafélags Reykjavíkur, ÍR.

Talsverðrar óánægju hefur gætt með íþróttahús félagsins síðustu misseri, en þar hefur verið leki sem erfitt virðist að komast fyrir. Einn stjórnarmanna vakti máls á þessu í íbúahópi á Facebook í síðustu viku og lýsti því þannig að knatthús félagsins og íþróttahús hefðu verið hriplek frá upphafi enda væru þau meingölluð að mörgu leyti.

Um er að ræða tvö hús, fjölnotahús sem vígt var haustið 2020 og íþróttahús sem vígt var síðsumars 2022. Vigfús segir að leki hafi komið upp í íþróttahúsinu þegar lekið hafi meðfram brunalúgu. Tekist hafi að komast fyrir þann leka. Hins vegar

...