Knut Ødegård
Knut Ødegård

Bókmenntahátíð í Reykjavík verður haldin dagana 23.-27. apríl í ár, en þá verða liðin 40 ár síðan hátíðin var haldin í fyrsta sinn. Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum er þema hátíðarinnar í ár „Heima og heiman“, sem má heimfæra upp á flesta þá erlendu höfunda sem taka þátt. „Hingað koma höfundar sem fjalla um heimilisleysi, flótta frá heimili, frið innan heimilis, nýlendustefnur og eftirlendur og svo mætti áfram telja. Einhverjir höfundanna eiga sér nýtt ríkisfang eða hafa flutt á milli landa og hefur þannig hugmyndin um hvað er „heima“ og hvað er að vera að „heiman“ tekið stakkaskiptum,“ segir Stella Soffía Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar.

Íslenskir höfundar verða kynntir síðar, sem og dagskráin í heild sinni, en meðal þeirra erlendu höfunda sem taka þátt í hátíðinni í ár eru Abdulrazak Gurnah sem

...