Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhannesson

Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseti Íslands, mun í dag halda hátíðarfyrirlestur á aðalfundi Vina Árnastofnunar sem haldinn verður í Eddu, Arngrímsgötu 5. Fyrirlesturinn ber heitið „Missagt í fræðum þessum. Nokkrir þankar um sögur, miðlun og sannleiksgildi“. Í tilkynningu félagsins segir að í fyrirlestrinum verði rætt um mikilvægi þess að varðveita fornrit og annan sagnaarf en ekki síður að rannsaka þau verðmæti og miðla þeirri þekkingu til fróðleiksfúss almennings. Einnig verður tæpt á sannleiksgildi hinna fornu sagna og ýmsum álitamálum sem vöknuðu þegar fræðimenn og aðrir fóru að draga það í efa. Þá er vakin athygli á að fyrir fundinum liggur tillaga stjórnar um að tekið verði upp félagsgjald og verða greidd atkvæði um þá tillögu. Fundurinn hefst með hefðbundnum aðalfundarstörfum kl. 17.