![](/myndir/gagnasafn/2025/02/14/c0bf9cdc-f4fc-4a95-a373-d175f5b2913d.jpg)
„Ég hef gefið blóð reglulega frá því að ég var 18 ára gamall,“ segir Steinar Hafberg, sem var að gefa blóð í gær í Blóðbankanum og sést hér á myndinni að ofan. Steinar segist reyna að gefa blóð á þriggja mánaða fresti. Hann hefur gefið blóð 48 sinnum og er hvergi nærri hættur.
Í gær var Blóðgjafadagur á vegum Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna, og Blóðbankans og voru fulltrúar Neistans á staðnum að fræða fólk um mikilvægi blóðgjafar fyrir börn með hjartagalla. Margir voru komnir til að gefa blóð og þar á meðal var Grétar Hjaltested rafvirki, sem var að gefa blóð í síðasta sinn.
„Ég er kominn á aldur, verð 71 árs núna í febrúar og það má ekki gefa blóð eftir þann aldur,“ segir hann. „Ég byrjaði ungur og labbaði frá Iðnskólanum í Blóðbankann sem var í næsta húsi og fannst gott að geta orðið til liðs.“
Grétar segir viðmót allra í Blóðbankanum einstakt og að hann hafi kvatt alla með virktum í gær. „Þær sögðu að
...