Mikil umræða hefur verið í Bretlandi að undanförnu um dauðsföll áhafnarmeðlima úr þyrlusveitum hersins þar í landi. Engar skýringar hafa fengist á umræddum dauðsföllum en stjórnvöld í Bretlandi hafa greitt bætur til þeirra sem greinst hafa með krabbamein eftir störf sín í háloftunum
Hætta Feðgarnir Vilhjálmur og Karl við Sea King-þyrlu sem Vilhjálmur flaug í breska flughernum á yngri árum.
Hætta Feðgarnir Vilhjálmur og Karl við Sea King-þyrlu sem Vilhjálmur flaug í breska flughernum á yngri árum. — AFP/Chris Jackson

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Mikil umræða hefur verið í Bretlandi að undanförnu um dauðsföll áhafnarmeðlima úr þyrlusveitum hersins þar í landi. Engar skýringar hafa fengist á umræddum dauðsföllum en stjórnvöld í Bretlandi hafa greitt bætur til þeirra sem greinst hafa með krabbamein eftir störf sín í háloftunum.

Bresku blöðin The Times og The Telegraph hafa nýverið greint frá andláti flugliðþjálfans Zach Stubbings sem var aðeins 47 ára þegar hann lést. Stubbings þjónaði í breska flughernum á sama tíma og Vilhjálmur Bretaprins. Hann lést af völdum krabbameins eftir að hafa andað að sér eiturgufum frá þyrlum að því er Telegraph greinir frá. Stubbings varði níu árum af starfsævi sinni á Sea King-þyrlum sem breski flugherinn notar. Á myndinni hér að ofan má sjá Vilhjálm Bretaprins og Karl konung stíga út úr Sea King-þyrlu þegar sá fyrrnefndi flaug slíkri árið 2012.

...