Land sígur við Miðgarð, fjölnota íþróttahús Garðabæjar í Vetrarmýri. Ástæðan fyrir siginu er að jarðvegur undir og á svæðinu í kringum húsið er mýri og þarna í kring hafa verið framkvæmdir. Dýpi á fastan botn er talsvert breytilegt eða allt að 12 metrar
![Lóðarfrágangur Malbik hefur brotnað og hellulögn er úr lagi gengin þar sem mýrin í kringum húsið hefur sigið um allt að 60 sentimetra.](/myndir/gagnasafn/2025/02/15/e3e1adb7-440c-4981-a581-785c1fe5f0c9.jpg)
Lóðarfrágangur Malbik hefur brotnað og hellulögn er úr lagi gengin þar sem mýrin í kringum húsið hefur sigið um allt að 60 sentimetra.
Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
Land sígur við Miðgarð, fjölnota íþróttahús Garðabæjar í Vetrarmýri. Ástæðan fyrir siginu er að jarðvegur undir og á svæðinu í kringum húsið er mýri og þarna í kring hafa verið framkvæmdir. Dýpi á fastan botn er talsvert breytilegt eða allt að 12 metrar.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir samskiptastjóri Garðabæjar segir húsið vera byggt á staurum og stagað niður í klapparbotninn undir húsinu. Þannig að sig undir húsinu hafi ekki áhrif á burðarþol hússins.
Sigið getur haldið áfram
„Sigið mælist frá 0-60 cm og er hvað mest þar sem mýrarlagið er þykkast sem er einmitt nánast undir miðju húsinu. Almennt er sig í mýrarjarðvegi sem hefur fengið á sig viðbótarálag s.s. vegna fyllinga mest til að byrja með en hægir svo á sér, en
...