Mína og Betsý hanna kjól fyrir fræga leikkonu og ákveða í framhaldi að fara í samstarf. Jóakim lendir í óprúttnum aðila sem þvingar hann til að breyta sér en að lokum fer allt vel. Páfuglatíska ræður ríkjum í Andabæ, Fiðri tekur þátt en Andrés gerir sitt besta til að forðast hana. Jóakim og Rokkafellir keppa enn og aftur um hvor sé farsælli, í þetta skiptið í fataiðnaðinum.
Glæsilegar sögur úr heimi fatahönnunar þar sem fötin skapa manninn – eða hvað?