Íslendinga þættir eru miklu styttri en Íslendinga sögur. Einn hinn skemmtilegasti er um Halldór Snorrason. Hann var dóttursonur Einars Þveræings og langalangafi Snorra Sturlusonar og hafði ungur verið í liði Væringja í Miklagarði ásamt Haraldi Sigurðssyni, hálfbróður Ólafs digra Noregskonungs. Þegar Haraldur varð konungur Noregs árið 1046 fylgdi Halldór honum.
Fyrst var slegin mynt í Noregi um 995 og var hún úr skíru eða brenndu silfri. En Haraldur konungur freistaðist til þess eins og valdsmenn fyrr og síðar að drýgja sjóði sína með því að framleiða verðlitla peninga. Voru peningar þeir sem hann lét slá blandaðir kopar að helmingi eða meira og kölluðust því bleikt silfur, Haraldsslátta. Um jólin 1049 skyldi konungur greiða Halldór mála. Þegar Halldór fékk peningana, sem reyndust úr bleiku silfri, en ekki skíru, kastaði hann þeim frá sér og var hinn reiðasti. Konungur
...