„Ríkisstjórnin skuldar þjóðinni skýringu á því hvað felst í orðunum „framhald viðræðna“ í nýjum stjórnarsáttmála,“ sagði Björn Bjarnason, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, á málþingi félags sjálfstæðismanna um fullveldismál í Valhöll í gær

Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
„Ríkisstjórnin skuldar þjóðinni skýringu á því hvað felst í orðunum „framhald viðræðna“ í nýjum stjórnarsáttmála,“ sagði Björn Bjarnason, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, á málþingi félags sjálfstæðismanna um fullveldismál í Valhöll í gær.
Hann rifjaði upp í ræðu sinni upphaf og endalok aðildarviðræðna ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og ESB á árunum 2009-2013 og sagði það liggja fyrir að Ísland væri ekki lengur umsóknarland.
„Það er frumskilyrði að til þjóðaratkvæðagreiðslu sé gengið um málefni sem kynnt er og lagt fyrir á skýran og ótvíræðan hátt. Þess vegna kemur ekki til álita að greidd séu atkvæði um framhald viðræðna sem siglt var í strand árið 2011 og voru síðan settar á ís
...