„Það eru ekki bara blæðingarnar í vegunum sem eru vandamálið heldur ekki síður hvað vegirnir eru ójafnir og það myndast bylgjur og hvörf sem valda hættu þegar við keyrum með blá ljós á öðru hundraðinu með sjúkling í bílnum
Samgöngur Vegurinn frá Borgarnesi ásamt Snæfellsneshringnum illa farinn af bylgjum og hvörfum. Ástæðan er frostlyfting sem gengur ekki til baka.
Samgöngur Vegurinn frá Borgarnesi ásamt Snæfellsneshringnum illa farinn af bylgjum og hvörfum. Ástæðan er frostlyfting sem gengur ekki til baka. — Ljósmynd/Vegagerðin

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

„Það eru ekki bara blæðingarnar í vegunum sem eru vandamálið heldur ekki síður hvað vegirnir eru ójafnir og það myndast bylgjur og hvörf sem valda hættu þegar við keyrum með blá ljós á öðru hundraðinu með sjúkling í bílnum. Maður man náttúrulega ekki alltaf eftir öllum hvörfum í veginum og þegar það gerist þá erum við með sjúklinginn fljúgandi.“

Þetta segir Einar Þór Strand, sjúkraflutningsmaður og slökkviliðsstjóri í Stykkishólmi, spurður um ástand vega á Vesturlandi og áhrif þess á sjúkraflutninga.

„Það er náttúrulega best að vera bara með kolsvartan húmor í þessu og við höfum sagt að úr því að ekki sé hægt að laga vegina þá sé kannski reynandi að virkja þetta ástand með þeim hætti að við gætum sparað

...