Það er jafnan fagnaðarefni þegar limrubækur fæðast. Vigfús M. Vigfússon var að gefa út safn af ferðasögum í fimm línum og fleiri svipmyndir. Af því tilefni yrkir hann: Ef ferðast ég sumurin fögur fæðast oft örlitlar sögur sem fljúga út í geim en falla svo heim og fléttast í fimmlínu bögur

Pétur Blöndal

p.blondal@gmail.com

Það er jafnan fagnaðarefni þegar limrubækur fæðast. Vigfús M. Vigfússon var að gefa út safn af ferðasögum í fimm línum og fleiri svipmyndir. Af því tilefni yrkir hann:

Ef ferðast ég sumurin fögur

fæðast oft örlitlar sögur

sem fljúga út í geim

en falla svo heim

og fléttast í fimmlínu bögur.

Svo tók ég þeim saman að safna,

að saman þær næðu að dafna,

í letri á blöð

í láréttri röð,

á sextíu síðum að hafna.

Nú hollt er ég hætti að mala

heldur á

...