Margvísleg gögn sýna með óyggjandi hætti að konan sem byrlaði Páli Steingrímssyni skipstjóra ólyfjan átti í nánum samskiptum við starfsfólk Ríkisútvarpsins í aðdraganda þess að hún var yfirheyrð í fyrsta sinn hjá lögreglu
Byrlunarmálið Teygði anga sína upp í Efstaleiti þegar sími barst þangað.
Byrlunarmálið Teygði anga sína upp í Efstaleiti þegar sími barst þangað. — Morgunblaðið/Eggert

Stefán E. Stefánsson

ses@mbl.is

Margvísleg gögn sýna með óyggjandi hætti að konan sem byrlaði Páli Steingrímssyni skipstjóra ólyfjan átti í nánum samskiptum við starfsfólk Ríkisútvarpsins í aðdraganda þess að hún var yfirheyrð í fyrsta sinn hjá lögreglu. Hún upplýsti sjálf í yfirheyrslu hjá lögreglu að hún hefði afhent starfsmönnum RÚV síma hans meðan hann barðist fyrir lífi sínu á gjörgæsludeild Landspítalans.

Í yfirheyrslu um mitt síðasta ár upplýsti hún að Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks hefði tekið við tækinu ásamt Arnari Þórissyni yfirframleiðanda þáttarins.

Mynd staðfesti viðtakanda

Af skýrslu lögreglu að dæma nefndi hún nafn þeirra beggja að fyrra bragði en óskaði eftir því að fá að sjá mynd af Arnari til þess að fullvissa sig um hver viðtakandinn var. Við því var orðið og var svar hennar afdráttarlaust.

Morgunblaðið hefur skýrslu lögreglu

...