
Vesturbær Atli Sigurjónsson hefur leikið með KR-ingum frá árinu 2017.
— Morgunblaðið/Eggert
Knattspyrnumaðurinn Atli Sigurjónsson hefur framlengt samning sinn við KR og mun hann leika með liðinu næstu tvö tímabil. Atli var samningslaus eftir síðasta tímabil og var því án félags í tæpa þrjá mánuði. Atli kom fyrst til KR frá uppeldisfélaginu Þór árið 2012 og skipti yfir til Breiðabliks árið 2016. Hann sneri svo aftur til KR árið 2017. Í 238 leikjum í efstu deild hér á landi hefur Atli skorað 36 mörk. Hann skoraði sex mörk í 23 leikjum með KR síðasta sumar.