30 ára Hildur fæddist á Ísafirði og ólst þar upp. Hún segir að það hafi verið mjög gaman að vera barn á Ísafirði og mikið frelsi. Hún var í fótbolta frá fimm ára aldri þar til hún varð 23 ára. Hún spilaði með BÍ/Bolungarvík og eftir að hún flutti suður sextán ára spilaði hún með Fram í Reykjavík.

Hildur fór í Verslunarskóla Íslands og eftir stúdentsprófið fór hún í grunnnámið í sálfræði í HÍ. Hún fór síðan í framhaldsnám í HR og útskrifaðist sem klínískur sálfræðingur í fyrra. Hún starfar sem sálfræðingur hjá Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni í Kópavogi og auk þess starfar hún sem sálfræðingur í Ljósinu, endurhæfingu fyrir þá sem hafa greinst með krabbamein. Hún segir starfið krefjandi en á sama tíma mjög gefandi.

Helstu áhugamálin eru hlaup og hreyfing. „Svo finnst mér mjög gaman að prjóna og núna er ég

...