Bjarki Karlsson er innvígður og innmúraður ásatrúarmaður, en þó þykir honum Hallgrímur Pétursson besta skáld okkar fyrr og síðar. Bjarki lét verða sitt morgunverk í gær að hnýta saman stuðlafall: Besta‘ og mesta boðnar- þreskta -mjöðinn sóknarpresti Saur- í -bæ seldi gestumblindi dræ
Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Bjarki Karlsson er innvígður og innmúraður ásatrúarmaður, en þó þykir honum Hallgrímur Pétursson besta skáld okkar fyrr og síðar. Bjarki lét verða sitt morgunverk í gær að hnýta saman stuðlafall:
Besta‘ og mesta boðnar- þreskta -mjöðinn
sóknarpresti Saur- í -bæ
seldi gestumblindi dræ.
Svona til skýringar má geta þess að Hallgrímur var prestur í Saurbæ og „gestumblindi“ er Óðinsheiti, hinn blindi gestur, en Óðinn var eineygður. Jón Jens Kristjánsson sækir innblástur til annars skálds, Einars Benediktssonar, er hann yrkir um hafrannsóknaskipið Árna Friðriksson í loðnu norður af Vestfjörðum:
Liðast um hafdjúpin loðnan
...