
Kjaraviðræður stéttarfélaga starfsmanna hjá Norðuráli við SA og Norðurál eru í hnút að því er fram kemur á vef Verkalýðsfélags Akraness. Þar segir að viðræðurnar séu „nú stál í stál“.
Þar segir að enn ríki mikil óvissa um framhaldið „en ljóst að við fyrsta tækifæri munu stéttarfélögin boða til aðgerða“. Bent er þó á að samkvæmt kjarasamningi sé það ekki hægt fyrr en þremur mánuðum eftir að kjarasamningur rennur út en samningur starfsmanna í álverinu rann úr gildi um seinustu áramót.
Kjaraviðræður hafa staðið yfir frá 14. október og var viðræðunum fyrir nokkru síðan vísað til ríkissáttasemjara. Óvíst er hvenær sáttasemjari boðar til næsta sáttafundar í deilunni.
Í fréttinni á vef VLFA segir að fulltrúar starfsmanna lýsi yfir miklum vonbrigðum með
...