Nýr meirihluti Samfylkingar, Flokks fólksins, Sósíalista, Pírata og Vinstri grænna tók við stjórnartaumunum í Reykjavíkurborg í gær.
„Ég myndi segja að þetta sé félagshyggjusamstarf. Félagshyggjustjórn sem er með félagshyggjuáherslur og það er það sem ég er virkilega ánægð með,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalista, í samtali við Morgunblaðið.
Heiða Björg Hilmisdóttir, oddviti Samfylkingarinnar, tekur við embætti borgarstjóra af Einari Þorsteinssyni, oddvita Framsóknar, og Sanna Magdalena tekur við embætti forseta borgarstjórnar af Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, oddvita Viðreisnar.
„Ég er auðvitað mjög auðmjúk gagnvart þessum heiðri og trausti sem þessar konur og félagar mínir hafa sýnt mér,“ segir Heiða í samtali við Morgunblaðið um nýja starfstitilinn. Hún segir að
...