Ensku liðin voru misheppin með drátt þegar dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildar karla í fótbolta í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í gær. Liverpool, sem hafnaði í efsta sæti deildarkeppninnar og trónir á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, mætir …

Meistaradeildin Hákon Arnar Haraldsson á fleygiferð í leik Liverpool og Lille í deildarkeppninni þar sem franska félagið hafnaði í sjöunda sætinu.
— AFP/Paul Ellis
Meistaradeildin
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Ensku liðin voru misheppin með drátt þegar dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildar karla í fótbolta í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í gær.
Liverpool, sem hafnaði í efsta sæti deildarkeppninnar og trónir á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, mætir Frakklandsmeisturum París SG, Arsenal mætir PSV frá Hollandi og Aston Villa mætir Club Brugge frá Belgíu.
Hákon Arnar Haraldsson og liðsfélagar hans í Lille mæta Borussia Dortmund frá Þýskalandi og þá verða tveir nágrannaslagir í sextán liða úrslitunum: Bayern München mætir Bayer Leverkusen og Real Madrid mætir Atlético Madrid.
Hákon gæti mætt Barcelona
Þá var
...