Jón Pétur Zimsen var einn margra sem tóku til máls í umræðum á þingi um innleiðingu löggjafar ESB um áfasta plasttappa og sagði þá geta minnkað lífsviljann að minnsta kosti um stund. Atli Harðarson greip það á lofti: Tregandi og tárvotur sný tappa sem festing er í

Pétur Blöndal

p.blondal@gmail.com

Jón Pétur Zimsen var einn margra sem tóku til máls í umræðum á þingi um innleiðingu löggjafar ESB um áfasta plasttappa og sagði þá geta minnkað lífsviljann að minnsta kosti um stund. Atli Harðarson greip það á lofti:

Tregandi og tárvotur sný

tappa sem festing er í.

Fæ enga lögg,

leitt er það bögg

og lífsvilji minn fyrir bí.

Ólafur Stefánsson er hugsi:

Ég yrki vers og vísur,

og vinn mig fram um spönn.

Dotta og dreg svo ýsur,

er dagsins hljóðnar önn.

En, enginn kann þau kvæði

...