Eftir að felld voru um 500 tré í Öskjuhlíð um helgina, sem hindrað hafa flug til og frá austur/vestur-flugbrautinni á Reykjavíkurflugvelli, var í gær efnt til fjarfundar Reykjavíkurborgar, Samgöngustofu, Isavia og tíu bæjar- og sveitarstjóra
Öskjuhlíð Viðbúnaður var um helgina er lokið var við að fella um 500 tré í aðflugsstefnu að Reykjavíkurflugvelli.
Öskjuhlíð Viðbúnaður var um helgina er lokið var við að fella um 500 tré í aðflugsstefnu að Reykjavíkurflugvelli. — Morgunblaðið/Ólafur Árdal

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Eftir að felld voru um 500 tré í Öskjuhlíð um helgina, sem hindrað hafa flug til og frá austur/vestur-flugbrautinni á Reykjavíkurflugvelli, var í gær efnt til fjarfundar Reykjavíkurborgar, Samgöngustofu, Isavia og tíu bæjar- og sveitarstjóra.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var farið yfir stöðuna og mun Samgöngustofa taka ákvörðun í framhaldi af úttekt Isavia, um hvort óhætt sé að opna flugbrautina eftir þennan áfanga í trjáfellingunum.

Eins og fram hefur komið hafa tíu sveitarstjórnir sameiginlega mótmælt lokun flugbrautarinnar þar sem það er litið mjög alvarlegum augum að henni hafi verið lokað.

Aðdraganda málsins má rekja til þess að kröfum og ábendingu Isavia og Samgöngustofu til

...