Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins, fékk greidd biðlaun og ótekið orlof eftir að hann sagði af sér sem formaður VR í byrjun desember, en starfslokauppgjör hans nam um 10 milljónum króna samkvæmt heimildum Morgunblaðsins

Uppgjör Ragnar Þór Ingólfsson hefur verið á þingfararkaupi frá því hann náði kjöri en hann þáði jafnframt tæpar átta milljónir í biðlaun frá VR.
— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Andrea Sigurðardóttir
andrea@mbl.is
Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins, fékk greidd biðlaun og ótekið orlof eftir að hann sagði af sér sem formaður VR í byrjun desember, en starfslokauppgjör hans nam um 10 milljónum króna samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Afþakkaði ekki biðlaun
Samkvæmt svari Stefáns Sveinbjörnssonar framkvæmdastjóra VR átti Ragnar Þór Ingólfsson rétt á biðlaunum til sex mánaða samkvæmt ráðningarsamningi. Sá réttur hefði ekki fallið niður nema Ragnar Þór afþakkaði launin, sem hann gerði ekki.
Ragnar Þór óskaði eftir því að fá biðlaunin greidd með eingreiðslu og hefur uppgjörið þegar farið fram. Laun hans námu 1,3 milljónum króna á mánuði og hefur eingreiðsla biðlauna því hljóðað upp á 7,8 milljónir króna.
...