Breiðablik og Víkingur eiga hrós skilið fyrir að lyfta íslenskri knattspyrnu í karlaflokki á nýtt þrep. Liðin buðu upp á stórkostlega baráttu um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð og þá hafa þau verið glæsilegir fulltrúar Íslands í Evrópukeppnum undanfarin tvö tímabil

Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Breiðablik og Víkingur eiga hrós skilið fyrir að lyfta íslenskri knattspyrnu í karlaflokki á nýtt þrep. Liðin buðu upp á stórkostlega baráttu um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð og þá hafa þau verið glæsilegir fulltrúar Íslands í Evrópukeppnum undanfarin tvö tímabil.
Metnaðurinn hjá báðum félögum er mikill og það segir allt sem segja þarf að þau voru bæði reiðubúin að reiða fram 20 milljónir króna fyrir Gylfa Þór Sigurðsson. Þau hafa breytt landslaginu hér á landi.
Bæði félög vilja meira og ná enn lengra. Þótt Víkingur hafi misst Gísla Gottskálk Þórðarson og Danijel Dejan Djuric eru menn stórhuga í Fossvoginum. Gylfi er kominn, ásamt Róberti Orra Þorkelssyni, Atla Þór Jónassyni, Daníel
...