Margt umhugsunarvert er að finna í nýrri skýrslu Samtaka atvinnulífsins um íslenska vinnumarkaðinn. Þar má til dæmis sjá að hér á landi starfar mjög hátt hlutfall fólks hjá hinu opinbera, eða 25%. Hlutfallið hjá OECD er að meðaltali 18% og aðeins hinar Norðurlandaþjóðirnar eru með svipað eða hærra hlutfall en við.
Þetta skiptir máli því að verðmætin til að standa undir velferð og velmegun verða fyrst og fremst til í atvinnulífinu. Og ekki verður verðmætasköpunin auðveldari við að hið opinbera semur ítrekað á öðrum og kostnaðarsamari nótum við starfsmenn sína en fyrirtæki á almennum markaði geta leyft sér.
Þannig eru í skýrslunni borin saman ýmis réttindi á almenna og opinbera markaðnum og eru þau jafnan á þann veg að opinberir starfsmenn njóta rýmri réttinda en hinir og munar oft miklu. Og fyrir þessi réttindi þurfa þeir að auki að
...