Við þökkum íbúum Ísafjarðarbæjar og annars staðar fyrir að taka „lionsskötunni“ sem og öðrum fjáröflunum okkar sérlega vel.
Kristján Pálsson
Kristján Pálsson

Kristján Pálsson

Lionsklúbbur Ísafjarðar var stofnaður 25. júní 1957 og hefur því verið starfandi í hartnær 68 ár. Hann hefur staðið fyrir margs konar fjáröflunum þessi ár. Selt heimilisvörur, verkað harðfisk. Bleikjusala var sameiginlegt verkefni Lionsklúbba á norðanverðum Vestfjörðum. Fengu félagsmenn viðurkenningu fyrir góðan árangur af sölunni og var fjallað um hana í Chicago. Við fengum um árabil lánað skipið Guðnýju til fiskveiða og var aflanum jafnan landað í Norðurtanga. Aflaðist undantekningarlaust vel undir styrkri skipstjórn Kristjáns Jónssonar. Klúbburinn naut sérstakrar velvildar Sigurðar Sveinssonar frá Góustöðum útgerðarmanns og einnig kaupanda aflans, Norðurtangans. Andvirðið rann óskipt til vistheimilisins Bræðratungu.

Síðustu 25 ár hefur aðalfjáröflun verið skötuverkun, sem er, eins og allir vita, ómissandi á Þorláksmessu. Við

...