Uppgjör og afhending vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingum hf. af Kviku banka fór fram í gær og hefur Landsbankinn tekið við rekstri félagsins. TM verður rekið sem dótturfélag Landsbankans. Umsamið og upphaflegt kaupverð var 28,6 milljarðar króna …
Uppgjör Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans og Birkir Jóhannsson, forstjóri TM.
Uppgjör Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans og Birkir Jóhannsson, forstjóri TM.

Uppgjör og afhending vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingum hf. af Kviku banka fór fram í gær og hefur Landsbankinn tekið við rekstri félagsins. TM verður rekið sem dótturfélag Landsbankans.

Umsamið og upphaflegt kaupverð var 28,6 milljarðar króna og miðaðist við efnahagsreikning TM í byrjun síðasta árs. Hækkun á efnislegu eigin fé TM á tímabilinu 1. janúar 2024 til 31. desember 2024 nemur um 3,7 milljörðum króna og er heildarkaupverð því um 32,3 milljarðar króna.

Lokauppgjör vegna kaupverðsaðlögunar mun fara fram þegar endurskoðað uppgjör TM, miðað við afhendingardag, liggur fyrir og mun koma til hækkunar eða lækkunar á kaupverðinu, segir í tilkynningu frá Landsbankanum.

Þar er m.a. haft eftir Lilju Björk Einarsdóttur bankastjóra að saman búi bankinn og TM yfir öflugu

...