
Fransk-íslenska viðskiptaráðið,
í samvinnu við Innviðateymi Íslandsbanka, heldur alþjóðlega ráðstefnu um samvinnuverkefni í dag. Á ráðstefnunni verður birt skýrsla um samvinnuverkefni unnin af Reykjavík Economics fyrir Íslandsbanka.
Í samtali við Morgunblaðið nefnir Sölvi Sturluson, viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka, að skýrslan sem unnin hafi verið fyrir bankann sé hugsuð sem innlegg í samtalið um hvernig samvinnuverkefni geti stuðlað að framförum og aukinni hagsæld hér á landi með frekari innviðafjárfestingu. Sölvi segir: „Fjárfestingaþörf í innviðum á Íslandi er umtalsverð bæði í viðhaldi núverandi innviða sem og í nýjum verkefnum. Við sem þjóð erum í þeirri forréttindastöðu að eiga enn töluvert af þjóðhagslega arðbærum fjárfestingakostum en því miður hefur allt of lítið gerst í þeim efnum undanfarin ár.“
Sölvi færir
...