
María Margrét Jóhannsdóttir
Að þvinga eigin áhugamálum upp á börn er góð skemmtun eins og foreldrar kannast eflaust við. Dætur undirritaðrar, tíu og fimmtán ára, hafa þurft að þola ýmislegt á sinni stuttu ævi. Sú eldri var t.d. lengi að fyrirgefa móður sinni þegar hún var dregin með á Fight Club í Bíó Paradís enda mynd sem getur setið eftir í óhörðnuðum sálum. Þá hefur þeim verið gert að sitja undir hinni þriggja tíma löngu Schindler's List en fullyrða má að þær muni búa lengi að þeirri upplifun enda sjaldan mikilvægara en nú að rifja upp fortíðina til þess að skilja samtímann. Á dögunum voru þær svo dregnar í bíó á enn aðra „mömmu-mynd“ – Riefenstahl eftir Andres Veiel sem sýnd var á Þýsku kvikmyndahátíðinni. Margir hafa átt erfitt með að
...