Staða Atlants­hafs­banda­lags­ins (NATO) og Evr­ópu var til umræðu á tví­hliða fundi Þor­gerðar Katrín­ar Gunn­ars­dótt­ur ut­an­rík­is­ráðherra og Jönu Cernochová varn­ar­málaráðherra Tékk­lands á Kefla­vík­ur­flug­velli í gær
Loftrýmisgæsla Tékkneski flugherinn kom til landsins undir lok maímánaðar til að sinna loftrýmisgæslu. Hann verður áfram næstu vikurnar. Hér má sjá þotur finnska flughersins á æfingu á öryggissvæðinu í Keflavík.
Loft­rým­is­gæsla Tékk­neski flug­her­inn kom til lands­ins und­ir lok maí­mánaðar til að sinna loft­rým­is­gæslu. Hann verður áfram næstu vik­urn­ar. Hér má sjá þotur finnska flug­hers­ins á æf­ingu á ör­ygg­is­svæðinu í Kefla­vík. — Morg­un­blaðið/Á​rni Sæ­berg

Birta Hann­es­dótt­ir

birta@mbl.is

Staða Atlants­hafs­banda­lags­ins (NATO) og Evr­ópu var til umræðu á tví­hliða fundi Þor­gerðar Katrín­ar Gunn­ars­dótt­ur ut­an­rík­is­ráðherra og Jönu Cernochová varn­ar­málaráðherra Tékk­lands á Kefla­vík­ur­flug­velli í gær.

Ræddu þær um áskor­an­ir sem NATO og Evr­ópa standa frammi fyr­ir og hvernig styrkja megi sam­band Íslands og Tékk­lands. Voru ráðherr­arn­ir einnig á sama máli um að halda áfram stuðningi við Úkraínu gegn inn­rás­ar­stríði Rússa.

„Við vilj­um vera öfl­ug­ir banda­menn inn­an NATO. Við erum öfl­ug­ir þátt­tak­end­ur þó svo að við séum ekki stærstu þjóðirn­ar,“ seg­ir Þor­gerður í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Til­efni heim­sókn­ar­inn­ar var viðvera tékk­neska flug­hers­ins á Kefla­vík­ur­flug­velli en hann sinn­ir

...