John Lennon
John Lennon

Upp­boðshúsið Christie’s mun í næsta mánuði bjóða upp eitt af ástar­bréf­um þeim sem John Lennon ritaði til Cynt­hiu, fyrri eig­in­konu sinn­ar, í apríl árið 1962, en þá voru Bítl­arn­ir enn á mót­un­ar­tíma­bili sínu í Ham­borg.

Gert er ráð fyr­ir að bréfið muni selj­ast á allt að 40.000 sterl­ings­pund, eða sem nem­ur um 6,7 millj­ón­um króna. Lennon ræðir þar meðal ann­ars um æsku­vin sinn, Stu­art Sutclif­fe, sem var bassa­leik­ari hljóm­sveit­ar­inn­ar, en hann lést úr heila­blæðingu nokkr­um dög­um áður en bréfið var ritað.

Þá kvart­ar Lennon einnig und­an hrot­un­um í Paul McCart­ney, sem svaf þá í efri koju fyr­ir ofan Lennon. „Paul hopp­ar um á hausn­um á mér (Hann er í koj­unni ofan á mér og hann hrýt­ur) Þegiðu, M Carntey [svo]“ seg­ir m.a. í bréf­inu.