
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Stuðningurinn kemur sér vel. Okkur var mikilvægt að fá nýjan traktor því bústörfin bíða ekki. Lífið heldur áfram hvað sem á dynur,“ segir Þorsteinn Loftsson í Haukholtum í Hrunamannahreppi.
Á dögunum lést af slysförum Víglundur, sonur Þorsteins og Steinunnar Lilju Svövudóttur, þegar dráttarvél sem hann sat fór út í Hvítá. Víglundur var jarðsunginn síðastliðinn þriðjudag, en strax eftir slysið hratt Kvenfélag Hrunamannahrepps af stað fjársöfnun til stuðnings fjölskyldu hans. Allhá upphæð hefur þegar safnast og í fyrradag var fjölskyldunni færður traktor sem keyptur var fyrir söfnunarféð.
Traktorinn nýi er af gerðinni John Deere; vél sem kemur sér vel á stóru búi. „Núna styttist í heyskap; tíma
...