
Þorsteinn Vilhjálmsson fæddist 27. september 1940. Hann lést 10. maí 2025.
Útför Þorsteins fór fram 22. maí 2025.
Þorsteinn Vilhjálmsson er besti yfirmaður sem ég hef nokkru sinni haft. Þegar ég réðst til starfa á Vísindavefnum hugsaði ég mér það í fyrstu aðeins til skamms tíma en fann fljótt að þarna átti ég vel heima. Þar hafði mikið að segja hversu gott og þægilegt var að vinna með Þorsteini, en ekki síður hversu lærdómsríkt það var. Um Þorstein er óhætt að segja að hann hafi verið jafnvígur á margar greinar vísinda, hvort sem þær tilheyrðu raunvísindum eða hugvísindum. Vísindasaga var hans helsta rannsóknasvið og þar kom þekking hans og skilningur á eðlisvísindum að einkar góðu gagni. Það sama má segja um svörin hans á Vísindavefnum. Þar fjallaði hann jöfnum höndum um sígilda aflfræði, öreindafræði, stjarnvísindi,
...