
Ásta Sigríður Hannesdóttir fæddist 10.3. 1929. Hún lést 30.5. 2025.
Útför Ástu fór fram 10. júní 2025.
Soroptimistasamtökin eru alþjóðleg samtök kvenna úr ýmsum starfsgreinum sem vinna að hvers kyns góðgerðarstarfsemi í samfélaginu og er fyrsta markmið samtakanna að vinna að bættri stöðu kvenna. Samtökin voru stofnuð í Kaliforníu 1921 og breiddust þaðan út um heiminn. Hreyfingin kom til Íslands árið 1959 þegar 18 konur stofnuðu Soroptimistaklúbb Reykjavíkur.
Soroptimistaklúbbarnir eru starfsgreinaklúbbar og þar eru konur með margvíslegan bakgrunn. Ásta var snyrtisérfræðingur og hafði að baki nám í snyrtifræði og fótaaðgerðum 1969, í snyrtiráðgjöf frá Revlon Institute í London 1970 og alþjóðlegt próf í snyrtifræði frá Mónakó 1977. Hún rak hárgreiðslu- og snyrtistofuna Kristu um langt árabil. Hún
...