
Klara Baldursdóttir var fædd í Reykjavík 22. janúar 1951. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu á Gran Canaria 4. júní 2025.
Hún var dóttir hjónanna Hansínu Helgadóttur, f. 1914, og Baldurs Jónssonar, f. 1915. Þau eignuðust fimm börn og var Klara næstyngst systkinanna en þau eru: 1) Edda, f. 1937, d. 2018, og hennar börn eru: Baldur Hans, Anna Klara, Hreinn og Orri. 2) Jón Baldur, f. 1941, d. 2004, hans börn eru Ásta Steina og Bryngeir. 3) Arnljótur, f. 1947, d. 1997, hans dóttir er Björk Berglind. 4) Klara, f. 1951, d. 2025, hennar synir eru Eiríkur og Jordi Hans. 5) Björk, f. 1955, hennar börn eru Daði Baldur og Helga Björk.
Klara ólst upp í Kópavogi, Reykjavík og Mosfellssveit á unglingsárum. Árið 1973 giftist hún Francisco Casadesus sem var frá Tossa de Mar á Spáni og hófu þau búskap þar. Árið 1975 fluttu þau til Gran Canaria og þar fæddust
...