
Á afmælisdegi lýðveldisins minnumst við og þökkum fyrir ævi og störf Jóns Sigurðssonar, fyrrum forseta Alþingis. Það var ekki fyrir hendingu að lýðveldið var stofnað á afmælisdegi hans, svo djúp skref markaði hann í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. En Jón var hvorki sá fyrsti né sá síðasti sem helgaði sig þeim málstað. Sjálfstæðisbaráttunni lýkur aldrei og öll leggjum við hönd á plóg, meðvitað eða ómeðvitað, á degi hverjum.
Þetta á við um alþingismenn eins og aðra. Alþingismenn sverja sérstakan eið að stjórnarskránni og er þeim skylt að vinna sitt starf samkvæmt bestu sannfæringu í þágu þjóðar. Ramminn utan um störf þingmanna er þingsköpin og er þeim m.a. ætlað að tryggja framgang mála og að meirihluti þingsins taki tillit til minnihlutans við afgreiðslu þeirra.
Þetta fyrirkomulag helgast af því að lýðræðið nær ekki hámarki sínu og endamarki við kosningar þar
...