
Mér hafa alltaf leiðst greinar þingmanna um vinnubrögð á Alþingi. Þingmenn ættu að laga verklag sitt í kyrrþey. Nóg er af öðrum mikilvægum og áhugaverðum álitaefnum sem eiga erindi við þjóðina.
En málþóf rýrir traust til Alþingis. Helgi Bernódusson, fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis, hélt ræðu í kringum starfslok sín 2019. Þar sagði Helgi:
„Einn draugur fer þó um þinghúsið og ygglir sig í þingsalnum og er mikil nauðsyn að kveðinn verði niður, rotaður í einu höggi, en það er málþóf. Í huga mínum, sem hef unnið í þinghúsinu í áratugi, og stundum þurft að sitja samfellt yfir slíkum draugagangi, er hann tilræði við heilbrigða skynsemi og yfirgangur sem er niðurlægjandi fyrir þingmenn og hina virðulegu stofnun, tilraun til að lama þingið, óbærilegur. Allir flokkar eru sekir í þessu efni.“
Mér
...