Alveg er það yndislegt hvernig hjól tímans snúast og hvernig góðar hugmyndir geta verið lífseigar þrátt fyrir allt.
Fyrir rösklega hálfri öld var okkur á Teiknistofunni Garðastræti 17 falið að vinna tillögur að „Endurskipulagi eldri hverfa“ borgarinnar. Hluti af þessari vinnu var athugun á möguleika á að gefa gangandi fólki í þessum hverfum meiri forgang bæði í Austurstræti og fleiri götum á þessu svæði. Sem hluta af skipulaginu könnuðum við þessi mál nokkuð rækilega og skiluðum m.a. skýrslu til borgarinnar árið 1973 um „varanlega breytingu Austurstrætis í göngugötu“, sem fróðlegt er að lesa í dag, og veltum þar upp ýmsum möguleikum og hugsanlegum útfærslum, unnum kostnaðaráætlanir fyrir þessa möguleika og könnuðum afstöðu fólks til þessara mála.
Okkur var síðan falið að hanna breytingar á Lækjartorgi og Austurstræti að hluta og þar gerðum við m.a. tillögu um að „gamli turninn“ yrði endurnýjaður og fluttur á Austurstræti,