![Hjörleifshöfði Víkingaskipið Örninn er komið upp á Mýrdalssandi á vegum Viking Park Iceland.](https://c.arvakur.is/m2/nmFcJW6YvNSgxHFHXFgCDFIACr4=/fit-in/1024x0/myndir/gagnasafn/2024/06/30/h29-a02b_1356254.jpg)
Við Hjörleifshöfða á Mýrdalssandi er nýlega komið upp stórt víkingaskip. Skipið er á vegum ferðaþjónustufyrirtækisins Viking Park Iceland, sem stefnir að því að byggja upp sögu- og menningartengda ferðaþjónustu við Hjörleifshöfða og Hafursey.
„Okkur langaði sérstaklega að kynna fyrir landi og þjóð, ásamt erlendum ferðamönnum, sögu landnámsins og vekja athygli fólks á nýjum og spennandi áfangastað. Hluti af því er víkingaskipið,“ segir Jóhann Vignir Hróbjartsson, framkvæmdastjóri Viking Park Iceland, í samtali við Morgunblaðið.
Víkingaskipið ber nafnið Örninn og var upphaflega gjöf frá Noregi til Reykjavíkurborgar árið 1974 í tilefni af 1.100 ára afmæli Íslandsbyggðar. Skipið var um tíma geymt í Nauthólsvík, á Árbæjarsafni og síðar Korpúlfsstöðum. Til stóð að farga skipinu en Jóhann Vignir og sonur hans, Vignir , hafa unnið við endurgerð þess undanfarin misseri. Fær það nú framhaldslíf í Víkingagarðinum
...